30 þúsund mótmæla hryðjuverkalögum 23. október 2008 12:02
Hátt í 30 þúsund manns hafa nú ritað nafn sitt undir yfirlýsingu á vefsíðunni indefence.is, þar sem framkomu breskra stjórnvalda gegn íslendingum er mótmælt. Aðstandendur síðunnar segja brýnt að Íslendingar og íslensk stjórnvöld krefjist afturköllunar á þeirri aðgerð breskra stjórnvalda að beita hryðjuverkalögum til að frysta eignir íslenskra banka í Bretlandi. Til þess að ná því markmiði þurfi landsmenn að kynna málstað sinn fyrir bresku þjóðinni, sem kannski átti sig ekki á því hve óeðlilegt það sé að beita hryðjuverkalögum gegn íslendingum og hve alvarlegar afleiðingar þess hafa verið. Í yfirlýsingunni er þess farið á leit við bresku þjóðina að hún standi með Íslendingum í þeirri viðleitni að binda enda á diplómatískar erjur milli ríkisstjórna landanna til þess að hægt verði að koma í veg fyrir frekara efnahagslegt tjón í löndunum tveimur og bæta það tjón sem orðið hefur. Markmiðið er að afhenda breskum yfirvöldum yfirlýsinguna og undirskriftalistann í viðurvist fjölmiðla. Vona aðstandendur verkefnisins að með þessu verði hægt að koma bresku þjóðinni í skilning um hversu mikið óheillaverk það var að beita hryðjuverkalögum á óréttmætan hátt gegn lítilli þjóð sem stóð veik fyrir vegna djúpstæðra efnahagslegra áfalla.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira