Innbrot í tvær verslanir Zik Zak í nótt - myndband Breki Logason skrifar 31. október 2008 16:01
Brotist var inn í tvær verslanir Zik Zak tískuhúss í nótt og öll skiptimynt tekin. Að sögn Berglindar Ásgeirsdóttur eiganda Zik Zak voru 20 þúsund krónur í hverjum kassa, en alls voru þrír búðarkassar spenntir upp og skemmdir. Hún varar verslunareigendur við að hafa skiptimynt í búðarkössum sínum. „Um hálf tólf leytið í gærkvöld var brotist inn í verslun okkar í Mörkinni og síðan um fimm í nótt var farið inn í verslun okkar í Hamraborg," segir Berglind en hurðirnar á verslunum voru brotnar upp. Berglind sem samtals rekur 8 Zik Zak verslanir segir að einu sinni áður hafi hún lent í svipuðu, þá var brotist inn í verslunina í Hamraborg. „Ég vil líka vara verslunareigendur við að vera með skiptimynt í kössunum. Frekar að taka hana með sér heim og skilja kassana eftir opna. Það er nefnilega erfitt að fá nýjar skúffur í kassana," segir Berglind sem keypti síðustu skúffurnar í landinu í morgun. Hún segir einnig að framvegis verði engin skiptimynt skilin eftir í búðarkössum Zik Zak. Í verslunum Berglindar er þjófavarnarkerfi frá Securitas og öryggismyndavélar. Allt kom þó fyrir ekki og sluppu þjófarnir af vettvagni með þýfið. Hægt er að horfa á upptökur af innbrotunum með þessari frétt en greinilegt er að þjófarnir vissu alveg hvað þeir voru að gera. Gengu hreint til verks og voru fljótir að láta sig hverfa. Berglind biður fólk að hafa samband við sig hjá Zik Zak ef það telur sig vita hverjir voru á ferðinni í verslunum Zik Zak í nótt.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri fréttir Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Sjá meira