Eiga kost á aukaláni og fyrirgreiðslu hjá LÍN 31. október 2008 15:58 MYND/Valgarður
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að fallast á tillögur Lánasjóðs íslenskra námsmanna um aðgerðir til að koma til móts við erfiða stöðu námsmanna erlendis vegna efnahagskreppunnar. Tillögurnar fela í sér að nemendur eiga kost á aukaláni frá LÍN sem samsvarar framfærslu allt að tveggja mánaða. Þá eigi lánþegar við nám á Íslandi rétt á sambærilegu aukaláni sem samsvarar framfærslu eins mánaðar. Þannig verði tekið sérstakt tillit til þess kostnaðar sem fylgir því að búa fjarri fjölskyldu og heimahögum. Þá verður svokallaður vaxtastyrkur, sem ætlað er að mæta vaxtakostnaði námsmanna vegna yfirdráttalána, hækkaður. Hækkar styrkurinn úr 250 krónum fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er í 400 krónur. Námsmaður sem lýkur fullu námi á skólaárinu fái þannig styrk að fjárhæð 24 þúsund krónur í stað 15 þúsund króna. „Við útreikning og afgreiðslu námslána þeirra sem hefja lánshæft nám á vormisseri 2009 komi 5% í stað 10% tekna til frádráttar. Tilgangur breytingarinnar er að auðvelda mönnum, t.d. vegna atvinnumissis, að hefja lánshæft nám á næsta ári þrátt fyrir háar tekjur árið 2008," segir í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu. Þá á mun útreikningur vegna námslána skiptinema á yfirstandandi ári miðast við gengið 26. september í stað 1. júní. Að öðru óbreyttu þýðir þetta um fjórðungshækkun framfærslulána til þessa hóps miðað við fyrri áætlun. Alls er áætlað að 400-500 lánþegar stundi nám sem skiptinemar erlendis. Þeim nemum sem sjá fram á vanskil vegna tekjutengdra afborgana af námslánum sínum, með gjalddaga 1. september 2008 eða 1. nóvember 2008, verður gefinn kostur á gera greiðslusamkomulag til þriggja mánaða í stað tveggja mánaða áður gegn lágmarksinnborgun sem samsvarar 1/3 skuldar í stað helmings áður. Enn fremur mun þeir sem eru að endurgreiða námslán og verða fyrir 20-30 prósent tekjumissi milli áranna 2008 og 2009 eiga kost á lægri tekjutengdri afborgun haustið 2009, og þeir sem verða fyrir tekjufalli umfram 30 prósent geta fengið tekjutengdu afborgun ársins fellda niður að fullu. „Almennt er greiðendum námslána gert að greiða 3,75%-4,75% af heildartekjum undangengis árs í afborganir af námslánum sínum. Með breytingunni er leitast við að koma til móts við þá sem verða fyrir verulegum tekjumissi milli ára," segir menntamálaráðuneytið. Þá hefur LÍN beint því til fjármálafyrirtækja að endurskoða yfirdráttarheimildir nema í útlöndum með tilliti til gengisþróunar.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira