Vilja lögbinda jafnt kynjahlutfall í stjórnum fjármálafyrirtækja 31. október 2008 17:19 Steinunn Valdís Óskarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. MYND/GVA
Fjórir þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram frumvarp um að bundið verði í lög að í stjórn fjármálafyrirtækja sitji sem næst jafnmargar konur og karlar.Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að atburðir síðustu vikna hafi sýnt að þörf er á nýrri nálgun og nýrri hugsun í stjórnun fjármálafyrirtækja hér á landi. Lengi hafi verið rætt um lögfestingu á jöfnun kynjahlutfalls í stjórnun fjármálafyrirtækja og um það verið skiptar skoðanir. Norðmenn hafi þegar lögfest kynjahlutfallið til að tryggja jafnræði kynja í stjórnum fjármálafyrirtækja.„Nú þegar stærstu bankar landsins verða í aðaleigu ríkisins og hlutfall kynjanna í stjórn þeirra þarf að vera sem jafnast og ekki minna en 40% í samræmi við jafnréttislög er eðlilegt að þessi regla eigi við um öll fjármálafyrirtæki landsins," segja flutningsmennirnir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Guðbjartur Hannesson, Ellert B. Schram og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.„Er þetta ekki hvað síst mikilvægt nú eftir þær hræringar sem orðið hafa á fjármálamarkaði og þar sem búast má við auknu atvinnuleysi í þessum geira á næstu missirum. Ljóst er að fram til þessa hafa konur ekki átt greiðan aðgang að stjórnum banka eða fjármálafyrirtækja. Er það miður, ekki síst þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á fjárhagslegan ávinning fyrirtækja af því að auka hlutfall kvenna í stjórnum. Hið sama á reyndar við um stjórnunarstöður og hlutdeild kvenna þar.Því er enn brýnna en áður að huga að jafnrétti á vinnumarkaði og þá ekki hvað síst með tliliti til aðgangs að stjórnunar- og ábyrgðarstöðum. Að auki er afar mikilvægt að stjórnir fjármálafyrirtækja séu þannig samsettar að gætt sé að fjölbreytileika, þar sem um er að ræða fjárvörslumenn almennings. Atburðir síðustu daga sýna að það er allur almenningur sem getur staðið og fallið með svona fyrirtækjum," segja flutningsmennirnir enn fremur.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Sjá meira