Mosfellsbær tekur við rekstri íþróttamiðstöðvar 31. október 2008 14:01 Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í Mosfellsbæ.
Mosfellsbær hefur tekið við rekstri Íþróttamiðstöðvarinnar Lágafells við Lækjarhlíð í Mosfellsbæ sem áður var rekin á vegum fyrirtækis í eigu Nýsis hf. Öllum starfsmönnum íþróttamiðstöðvarinnar verður boðið starf hjá Mosfellsbæ frá og með 1. nóvember. Alls starfa 13 manns í fullu starfi við íþróttamiðstöðina og um tíu til viðbótar í hlutastarfi. Fasteignafélagið Lækjarhlíð ehf., sem er í eigu Nýsis hf. og Mosfellsbæjar, reisti íþróttamiðstöðina árið 2006 og hefur Nýsir Services rekið hana upp frá því. Í starfseminni felst meðal annars þjónusta við nemendur í Lágafellsskóla, svo sem sundkennsla og íþróttakennsla og er þar jafnframt almenningssundlaug fyrir íbúa Mosfellsbæjar, samkvæmt samningi Nýsir Sevices og Mosfellsbæjar. Vegna mikilla erfiðleika í efnahagslífinu og rekstrarörðugleika fyrirtækisins óskaði Nýsir Services nýverið eftir því við Mosfellsbæ að það yrði leyst undan samningum. Mosfellsbær varð við þeirri ósk og tekur við rekstri íþróttamiðstöðvarinnar svo tryggja megi áframhaldandi þjónustu við íbúa í Mosfellsbæ. Í íþróttamiðstöðinni er meðal annars rekin sundlaug, íþróttahús og líkamsræktarstöð á vegum World Class. „Það er ánægjuefni að Mosfellsbær geti boðið starfsfólki Íþróttamiðstöðvarinnar Lágafells áframhaldandi trygga atvinnu og brýnt að tryggja áframhaldandi þjónustu við íbúa Mosfellsbæjar með því að bregðast við ósk rekstraraðilans um að taka við rekstrinum. Við vonumst til að geta tekið við rekstrinum án þess að nokkuð rask verði á starfseminni," segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Haraldur Líndal, framkvæmdastjóri Nýsir Services, segir: "Ég þakka Mosfellingum fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum árum og bæjarstjórn Mosfellsbæjar fyrir sýndan skilning á stöðu fyrirtækisins."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira