Álveri við Húsavík frestað 31. október 2008 18:59
Undirbúningi nýs álvers á Bakka við Húsavík hefur verið frestað og rannsóknarboranir, sem áformaðar voru á næsta ári, slegnar af. Viljayfirlýsing Landsvirkjunar og Alcoa um verkefnið var ekki endurnýjuð nú um mánaðamótin þar sem álfyrirtækið treysti sér ekki til að leggja út í frekari kostnað við boranir að sinni.Raforkan til álversins á Bakka átti að koma frá jarðgufuvirkjunum í Þingeyjarsýslum. Umfangsmiklar rannsóknarboranir fyrir fjóra milljarða króna voru fyrirhugaðar á næsta ári, bæði í Kröflu og á Þeistareykjum, og stóð til að Alcoa greiddi helming þess kostnaðar. Ákvörðun um framhald borana frestast um eitt ár, samkvæmt sameiginlegri tilkynningu Landsvirkjunar, Alcoa og Þeistareykja ehf.Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir Alcoa vera að draga saman seglin víðsvegar um heim og félagið hafi ekki talið sig geta komið með fjármuni inn í rannsóknarboranirnar. Íslensku aðilarnir, Landsvirkjun og Þeistareykir, hafi einnig staðið frammi fyrir óvissu um fjármögnun og á hvaða kjörum hún fengist.Ekki náðist í forstjóra Alcoa í dag, Tómas Má Sigurðsson, en hann sagði eftir fund hjá Landsvirkjun fyrr í vikunni að menn ætluðu að nýta orkuna fyrir norðan. Það gæti vel verið að ein heimskreppa skylli á en menn héldu bara áfram sínum áformum. Alcoa hefði mikinn áhuga á að kaupa orkuna.Nýting orkulinda til stóriðju var einn helsti liðurinn sem stjórnvöld horfðu til við endurreisn efnahags landsmanna eftir bankahrunið. Þorsteinn Hilmarsson segir þetta mikið áfall, sérstaklega vegna væntinga sem hafi verið að byggjast upp á Norðausturlandi. Hins vegar standi allar vonir til þess að menn nái vopnum sínum og haldi þessara samvinnu áfram. Ætlunin sé að taka afstöðu til þess næsta haust hvort menn ráðist í rannsóknarboranir.
Tengdar fréttir Tilraunaborunum vegna Bakkaálvers frestað vegna efnahagsástands Tilraunaborunum í tengslum við hugsanlegt álver á Bakka við Húsavík hefur verið frestað um sinn og verður málið skoðað næsta haust. 31. október 2008 16:15 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira
Tilraunaborunum vegna Bakkaálvers frestað vegna efnahagsástands Tilraunaborunum í tengslum við hugsanlegt álver á Bakka við Húsavík hefur verið frestað um sinn og verður málið skoðað næsta haust. 31. október 2008 16:15