Innlent

Skipa starfshóp um framtíð Reykjavíkurflugvallar

Borgarstjóri og samgönguráðherra náðu í dag samkomulagi um skipan starfshóps um framtíð Reykjavíkurflugvallar og að fyrsti áfangi samgöngumiðstöðvar geti risið árið 2010. Borgarstjóri er enn þeirrar skoðunar að Vatnsmýrin sé ákjósanlegt byggingarland.

Hanna Birna Kristjánsdóttir er fjórði borgarstjórinn sem gengur á fund samgönguráðherra á fimmtán mánuðum til að ræða um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Hún hefur verið stuðningsmaður þess að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni en hún kom þó ekki með neina slíka tilkynningu á fund ráðherra í dag. Þau ákváðu hins vegar að skipa nefnd um framtíð flugvallarins með oddamanni sem þau ná saman um.

Samgönguráðherra segir að það séu aðeins tveir kostir í stöðunni, Hólmsheiði eða núverandi flugvallarstæði.Borgarstjóri vill hins vegar ekki útiloka aðra möguleika.

Samkomulag er um að flýta skipulagsvinnu vegna samgöngumiðstöðvar þannig að fyrsti áfangi hennar rísi árið 2010.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×