Makalaust að embættismenn hóti stjórnvöldum 4. september 2008 16:56
Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri - grænna, segir það makalaust að stjórn Samorku, sem skipuð er forsvarsmönnum stærstu orkufyrirtækja landsins sem jafnframt eru í opinberri eigu, skuli leyfa sér að hóta stjórnvöldum að leita til dómstóla endurskoði þau ekki ákvörðun sína um að álver á Bakka og tengdar framkvæmdir skuli í sameiginlegt umhverfismat. Samorka, sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja, sendi fyrr í dag frá sér ályktun þar sem skorað var á stjórnvöld að endurskoða ákvörðun sína til að lágmarka þann skaða sem að óbreyttu gæti hlotist af úrskurðinum. Ef ekki næðist ásættanleg niðurstaða í þeim efnum teldi stjórnin nauðsynlegt að dómstólar skæru úr um lögmæti úrskurðar Þórunnar Sveinbjarnadóttur umhverfisráðherra. „Að menn skuli leyfa sér svona hótanir er alveg makalaust," segir Álfheiður Ingadóttir og bendir á að stjórn félagsins sé skipuð embættismönnum á launum hjá þjóðinni. Formaður stjórnar Samorku er Franz Árnason, forstjóri Norðurorku, og meðal annara stjórnarmanna eru Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, og Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik. Þá bendir Álfheiður á að stjórn Samorku færi ekki neinar röksemdir fyrir því að úrskurður ráðherra sé ólöglegur. Álfheiður segir þetta beinar hótanir. Hún minnir enn fremur á að Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hafi lýst því yfir á Alþingi í gær að hann hyggist endurnýja rannsóknarleyfi fyrir norðan vegna tilraunaborana á háhitasvæðum þrátt fyrir úrskurð Þórunnar um heildstætt umhverfismat. Þá hafi Össur lýst því yfir að allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar væru fylgjandi álveri á Bakka. Þetta sýndi að verið væri að einangra Þórunni Sveinbjarnardóttur í Samfylkingunni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira