Boðað til samstöðu við Alþingishúsið í hádeginu á morgun 4. september 2008 16:12
Hópur hagsmunasamtaka og félaga hefur boðað til samstöðu við kjarabaráttu ljósmæðra klukkan 12.15 á morgun á Austurvelli. Í tilkynningu frá félögunum segir að ríkisstjórnin axli ekki ábyrgð og geri þar með yfirlýsingar og fyrirheit að engu. „Stjórnarsáttmálinn er marklaust plagg. Þarfir barnshafandi kvenna skipta ekki máli og störf ljósmæðra eru lítils virði. Þó málið varði fyrst og fremst barnshafandi konur og hið nýja líf sem þær bera í skauti sér, þá snúast störf ljósmæðra um framtíð þessa lands í heild sinni. Ekkert er mikilvægara en endurnýjun þjóðarinnar. Til að hún geti orðið með eðlilegum hætti verður að tryggja þjónustu ljósmæðra nú og um aldir alda," segir í tilkynningunni. Þar kemur enn fremur fram að þjóðin standi með ljósmæðrum og bent á að ýmsir þjóðfélagshópar hafi sent frá sér stuðningsyfirlýsingar. „Fram til þessa hafa konur á barneignaraldri verið í framvarðarsveit stuðningsfólks sem er eðlilegt. Nú er þó svo komið að þjóðin öll verður að láta í sér heyra. Öll höfum við fæðst. Mætum á Austurvöll kl. 12.15 og styðjum kjarabaráttu ljósmæðra," segir þar enn fremur. Femínistafélag Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Flugfreyjufélag Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, BHM, Læknafélag Íslands, Kennarasamband Íslands, Landssamband framsóknarkvenna, Vinstrihreyfingin - grænt framboð og Ljósmæðrafélag Íslands standa fyrir samstöðunni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira