Þriggja ára stúlka kafnaði næstum 4. september 2008 19:34
Minnstu munaði að þriggja ára stúlka kafnaði í handklæðahring heima hjá sér á Selfossi fyrr á þessu ári. Herdís Storgaard forstöðumaður Forvarnarhúss ráðleggur foreldrum smábarna að taka niður handklæðahringi. Hún segir margar hengingargildrur á heimilum. Það var fyrr á þessu ári að mæðgur á Selfossi voru að bardúsa heima um kvöldmatarleytið. Mamman var að stússast í eldhúsinu og þriggja ára dóttir hennar að leika sér. Mamman hlustar reglulega eftir litlu stelpunni og heyrir að hún er komin inn á baðherbergi. Hún heldur áfram með matseldina þar til hún heyrir skyndilega óhugnanlegt hljóð innan úr baðherberginu, ámátlegt ýlfur. Skelfingu lostin losar mamman barnið úr hringnum. Fréttastofa Stöðvar 2 ræddi við föður litlu stelpunnar í dag sem segir að þarna hafi líklega fáeinar sekúndur skilið á milli lífs og dauða. Svo virðist sem barnið hafi klifrað upp á þrep - sem eru á baðherbergjum margra barnafjölskyldna - troðið hausnum í gegnum hringinn og sparkað síðan þrepinu frá sér með þessum afleiðingum. Hann segir atvikið hafa orðið til þess að þeir foreldrarnir hafi farið að skoða heimilið með öðrum augum. Því hverjum hefði dottið í hug að sárasaklaus handklæðahringur gæti orðið hugsanleg dauðagildra. Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnahúss, segir hengingargildrur á heimilum raunar margar. Hún bendir á snúrur úr felligardínum en nokkur dæmi eru um að minnstu hafi munað að lítil börn hafi hengt sig í slíkum búnaði.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Fleiri fréttir „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Sjá meira