Ekki rétt að Moody´s telji best að bankarnir fari úr landi 29. janúar 2008 13:43 MYND/GVA
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir það rangt sem fram hafi komið í fjölmiðlum að matsfyrirtækið Moody´s hafi lagt til að íslenku bankarnir flyttu úr landi. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Flokksbróðir forsætisráðherra, Illugi Gunnarsson, gerði nýja skýrslu Moody´s á lánshæfi ríkissjóðs að umræðuefni í fyrirspurn sinni. Benti hann að Moody´s hefði komist að því að staða ríkissjóðs væri gríðarlega sterk og hann væri vel í stakk búinn til að takast á við kreppu á fjármálamarkaði. Það væri meðal annars vegna þess hve háar tekjur væru á mann hér á landi og hve staða lífeyrissjóðanna væri góð. Spurði hann forsætisráðherra hins vegar út í það sem lesa mætti út úr skýrslu Moody´s um að íslenska krónan væri of lítil fyrir bankana og að betra væri fyrir bankana að fara úr landi. Geir H. Haarde sagði álit Moody´s jákvættt, ekki síst varðandi fjárhagsstöðu ríkissjóðs. Matsfyrirtækið birti núna þetta álit til þess að rökstyðja það að það hafi gefið ríkissjóði hæstu einkunn, Aaa. Þá sagði Geir rétt að leiðrétta það sem fram hefði komið í fjölmiðlum að best væri að íslensku bankarnir flyttu úr landi. Það standi ekki í skýrslunni heldur hins vegar að ef bankarnir fari úr landi muni þau óbeinu áhrif sem hvíli á ríkissjóði vegna þeirra minnka. Þetta sé hins vegar ekki aðalatriði skýrslunnar heldur það að efnahagsaðstæður séu þannig að engin hætta sér hérlendis þótt það kæmi til alvarlegrar fjármálakreppu.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira