Faxaflóahafnir reiðubúnar til viðræðna við HB Granda 29. janúar 2008 11:25 Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxflóahafna. MYND/Heiða
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir forsvarsmenn fyrirtækisins fúsa til viðræðna við HB Granda um framtíð fyrirtækisins á Akranesi. Faxaflóahafnir hafa sent HB Granda hugmyndir sem miða að því að verða við óskum fyrirtækisins um uppbyggingu á hafnarsvæði Akraness og ættu þær að vera þrjú ár í framkvæmd. Stjórnendur HB Granda hafa tilkynnt að þeir hyggist hætta landvinnslu bolfisks á Akranesi og verður um 60 manns sagt upp af þeim sökum en þriðjungur ráðinn aftur til annarra starfa. Fundað var um málið á vegum bæjarstjórnar Akraness í gær og skorar hún á stjórnir HB Granda og Faxaflóahafna að taka upp viðræður um flutning fyrirtækisins til Akraness. HB Grandi hafði uppi áform í fyrra um að flytja starfsemina þangað og óskaði eftir því að Faxaflóahafnir gerðu landfyllingu og úthlutaði lóð undir nýtt fiskiðjuver. Fyrirtækið hætti hins vegar við þau áform þegar Faxaflóahafnir töldu sig ekki geta orðið við öllum óskum fyrirtækisins innan þess tímaramma sem fyrirtækið setti, sem var síðla árs 2009. Fyrirtækið ætti að geta þreyjað þorran Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir fyrirtækið fúst til viðræðna við HB Granda. Hann bendir á að þegar HB Grandi hafi tilkynnt í fyrra að fyrirtækið hygðist flytja upp á Akranes hafi legið fyrir tillögur sem ætla mætti að myndu kosta fjóra milljarða. Engin leið hafi verið að ráðast í þær framkvæmdir innan þess tímaramma sem settur hafi verið. „Svo fórum við að skoða einfaldari lausnir, sem þó kosta um tvo milljarða, en þær ganga út á það að leysa sömu erindi og HB Grandi hafði í fyrra," segir Gísli. Meðal annars sé um að ræða aukið landrými við hafnarbakkann á Akranesi og aukna kyrrð í höfninni. „Við höfum kynnt þessar hugmyndir fyrir bæjarstjórn Akraness sem tók vel í málið og við höfum einnig sent HB Granda þær. Við teljum sem sagt að það sé á skynsamlegum tíma hægt að verða við öllum óskum fyrirtækisins," segir Gísli og á þar þriggja ára tímaramma. „Mitt mat er það að þegar horft er til lengri tíma þá geti það ekki verið sá tími sem skiptir máli fyrir fyrirtækið," segir Gísli. Aðspurður hvort hann eigi við að HB Grandi ætti að geta þreyjað þorran í þann tíma á Akranesi segist Gísli telja að það fari létt með það ef áhugi sé fyrir hendi. Aðspurður hvernig atburðirnir horfi við honum sem Skagamanni segir Gísli að það sé dapurt að horfa á fiskvinnslu og útgerð liðast í sundur á Akranesi. Það sé sannarlega ekki í takt við markmið Faxaflóahafna. „En þarna þarf að fara saman vilji hafnarinnar og fyrirtækisins og vonandi næst skynsamleg niðurstaða sem verður til hagsbóta fyrir samfélagið," segir Gísli. Segir hugmyndir Faxaflóahafna til lengri tíma Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda, segir aðspurður um áskorun bæjaryfirvalda á Akranesi að fyrirtækið skoði alla möguleika í stöðunni en fyrirtækið standi við sína ákvörðun að óbreyttu. Hann segir að verið sé að skoða hugmyndir Faxflóahafna um uppbyggingu á Akranesi en það mál sé skammt á veg komið og á þær sé horft til lengri tíma. Hann geti því ekki kveðið upp úr um þær nú.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira