Samningur Reykjavíkurborgar um skógrækt dreginn til baka Magnús Már Guðmundsson skrifar 22. júlí 2008 14:53 Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs, og Þröstur Ólafsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, við undirritun samningsins 9. júní sl. sem nú hefur verið dreginn til baka MYND / www.rvk.is
Samningur sem Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, undirritaði við Skógræktarfélag Reykjavíkur í júní síðastliðnum uppfyllir ekki efniskröfur sem borgin gerir til slíkra gerninga og verður því dreginn til baka eftir viðræður við forsvarsmenn Skógræktarfélgsins. Þetta kemur fram í svari sem Örn Sigurðsson, skrifstofustjóri umhverfis- og samgöngusviðs, til innkauparáðs Reykjavíkur eftir fyrirspurn frá Stefáni Jóhanni Stefánssyni, fulltrúa Samfylkingar í ráðinu, en hann spurðist fyrir um hvort samkomulagið stæðist innkaupareglur. ,,Það er gott að augu meirihlutans hafi verið opnuð fyrir þessu en svo virðist sem Gísli Marteinn hafi ætlað að taka nokkur græn skref í einu stökki og orðið dálítill fótaskortur í leiðinni," segir Stefán Jóhann. Samkomulagið gerði ráð fyrir að kostnaður við verkefnið gæti orðið 50 milljónir króna á þremur árum þótt aðilar skuldbundu sig aðeins til eins árs í byrjun. Litið er á samkomulagið sem lið í Grænum skrefum sem felast meðal annars í gróðursetningu hálfrar milljónar trjáa í landi Reykjavíkur til aukinnar skjólmyndunar, meiri skógræktar og bindingar koltvísýrings. Þegar samkomulagið var kynnt vöknuðu spurningar um hvort verk af þessu tagi væri ekki útboðsskylt, en skylt er að bjóða út verk ef samningsfjárhæð er hærri en 28 milljónir króna. Auk þess þótti vafi leika á umboði pólitísks kjörins formanns umhverfis- og samgöngusviðs til að undirrita slíkar fjárskuldbindingar. Nú hefur samkomulagið hins vegar verið dregið til baka og verður þá væntanlega gert nýtt samkomulag við Skógræktarfélag Reykjavíkur sem uppfyllir reglur Reykjavíkurborgar. Hvorki náðist í Ellý Katrínu Guðmundsdóttir, sviðsstjóra, eða Örn Sigurðsson, skrifstofustjóra umhverfis- og samgöngusviðs, við vinnslu fréttarinnar.
Tengdar fréttir Sókn í gróðursetningu trjáa í Reykjavík Skógræktarfélag Reykjavíkur og Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar hafa gert með sér samning um gróðursetningu 460 þúsund skógarplantna í Heiðmörk, Esjuhlíðum og Úlfarsfelli. 10. júní 2008 16:58 Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Óvissa með sólmyrkvaveður Innlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Innlent Fleiri fréttir Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Sjá meira
Sókn í gróðursetningu trjáa í Reykjavík Skógræktarfélag Reykjavíkur og Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar hafa gert með sér samning um gróðursetningu 460 þúsund skógarplantna í Heiðmörk, Esjuhlíðum og Úlfarsfelli. 10. júní 2008 16:58