Deildu um áhrif umhverfismats vegna Bakkaálvers 12. september 2008 11:23 MYND/Pjetur
Utanríkisráðherra sakaði Framsóknarflokkinn um þráhyggju í tengslum við umfjöllum um heildstætt umhverfismat fyrir Bakkaálver á Alþingi í dag.Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði ráðherra út í málefni álversins og rannsóknir á orkuöflun, meðal annars hvort framkvæmdaaðili gæti haldið áfram með tilraunaboranir þrátt fyrir að heildstætt umhverfismat færi fram. Benti hún á að umhverfisráðherra hefði sagst ekki sjá neitt sem gæti hindrað það og spurði Valgerður hvað utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segði um það. Enn fremur hvort Samfylkingin hygðist bera ábyrgð á því að framkvæmdum vegna Bakkaálvers yrði frestað um ár þar sem ekki væri hægt að fara í nauðsynlegar rannsóknir.Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra svaraði því til að einhver þráhyggja einkenndi málið hjá Framsóknarflokknum. Það væri búið að spyrja bæði umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra um málið og svör þeirra væru skýr. Sagði Ingibjörg Sólrún að hægt væri að finna leiðir til fyrir rannsóknarboranir en þær þyrftu að sæta umhverfismati. Skipulagsstofnun væri að fara yfir málið með framkvæmdaaðilum og benda á færar leiðir.Varaformaður Framsóknarflokksins sagði ráðherra þá kveinka sér þegar þetta mál bæri á góma vegna þess að Samfylkingin væri að klúðra málinu. Svar ráðherra um að heildstætt umhverfismat ætti ekki að tefja málið væri ekki fullnægjandi og ekki væri hægt að bjóða upp á einhverjar krókaleiðir fram hjá úrskurði umhverfisráðherra. Ítrekaði hún spurningu sína um hvort Samfylkingin hygðist seinka málinu um ár.Utanríkisráðherra kom þá aftur í pontu og sagðist ekki kveinka sér undir umræðunni þótt hún benti á þær augljósu staðreyndir hversu mikilli þráhyggju Valgerður væri haldin í málinu. Ítrekaði Ingibjörg Sólrún að hægt væri að finna leiðir til að rannsóknir gætu farið fram en rannsóknarborholur þyrftu að fara í ákveðið umhverfismat, eins og allar slíkar framkvæmdir, án þess að heildarmatið væri tekið undir.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira