Innlent

Efnahags- og atvinnumál verða áberandi á haustþingi

Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Siv Friðleifsdóttir þingflokksformaður Framsóknarflokksins.

Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir að alvarleg staða í atvinnumálum þjóðarinnar og bágborið efnahagsástand verði megin umræðuefnið á þingfundum sem fram fara næstu tvær vikurnar. „Við munum krefja ríkisstjórnina svara um hvað hún ætli að gera því að hún hefur verið mjög daufgerð í þessum málum.

Siv segir að framsóknarmenn vilji styrkja gjaldeyrisforðann. Þá segir hún að skoða þurfi uppbyggingu í stóriðjunni áfram. „Þar hefur ríkisstjórnin verið mjög ósamstíga," segir Siv. Hún segir jafnframt mikilvægt að skoða aðra möguleika, þar sem tækifæri sé fyrir vöxt og nefnir ferðaþjónustu sérstaklega.

Ekki er hefð fyrir því að Alþingi fundi í september en fundarlotan sem fer nú af stað er í samræmi við ný þingskaparlög Alþingis.

Hvorki náðist í Arnbjörgu Sveinsdóttur né Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformenn stjórnarflokkanna, við vinnslu þessarar fréttar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×