Innlent

Truflanir á GSM á Norðurlandi og Vestfjörðum

Truflanir eru á GSM þjónustu á Norðurlandi og á Vestfjörðum vegna rofs á ljósleiðara. Í tilkynningu frá Vodafone segir að búið sé að staðsetja rofið og eru viðgerðarmenn á staðnum.

3G þjónusta er takmörkuð á meðan unnið er að viðgerð, sem væntanlega lýkur fljótlega upp úr hádegi, að því er segir í tilkynningunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×