Innlent

Lögreglan á Akureyri biður ökumenn að fara gætilega

Lögreglan á Akureyri hafði samband við Vísi fyrir stundu og vildi brýna fyrir ökumönnum á norðurlandi að fara varlega á vegum úti. Fjórir árekstrar hafa orðið í grennd við bæjarfélagið nú í kvöld en mikil hálka er fyrir norðan.

Einn ökumaður fór útaf í Öxnaddal, annar á Ólafsfjarðarvegi og tveir í Vikurskarði. Engin meiðsli urður á fólki en þó nokkurt eignartjón.

Sumarið virðist því ekki alveg komið fyrir norðan og biður lögreglan ökumenn að fara gætilega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×