„Í samræmi við það sem við höfum sagt“ 19. maí 2008 16:17 Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. MYND/Egill Bjarnason „
Við getum ekki annað fagnað þessari niðurstöðu, Þetta er í samræmi við það sem við höfum sagt," segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, um álit Skipulagsstofnunar vegna Bitruvirkjunar. Stofnunin telur að bygging Bitruvirkjunar á Hengilssvæðinu sé ekki ásættanleg vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu. Aðspurð hvort um fullnaðarsigur sé að ræða hjá þeim sem barist hafi gegn virkjuninni segir Aldís: „Ég tel að það sé afskaplega erfitt að reisa virkjun á þessu svæði þegar þessi úrskurður liggur fyrir." Hún bendir á að bæjarstjórn Hveragerðis hafa allan tímann tekið einarða afstöðu gegn virkjuninni og talið að með henni sé verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Þá bendir hún á að Hvergerðingar hafi haft allnokkrar áhyggjur af loftgæðum þar sem loftmengun frá virkjuninni muni berast yfir bæinn í ríkjandi vindátt. „Þannig að það eru þarna ákveðnir óvissuþættir sem sýna það að álit bæjarstjórnar er ekki gripið úr lausu lofti," segir Aldís. Bæjarstjórinn hefur mikla trú á Hengilssvæðinu fyrir ferðaþjónustuna. Hún bendir á að í erlendum ferðahandbókum séu gönguleiðir um svæðið tilgreindar sem helsta aðdráttarafl svæðisins og hún hafi fengið þær upplýsingar hjá upplýsingamiðstöð ferðaþjónustunnar að mikill áhugi sé fyrir svæðinu, fólk sæki mikið upp í Klambragil og heita lækinn. „Í þessu felst okkar auðlind og við verðum að vernda hana, ekki síst fyrir börn okkar og komandi kynslóðir," segir Aldís.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira