Innlent

Margmenni við fuglaskoðun í Sesseljuhúsi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
MYND/Sesseljuhús

Góð mæting var í Sesseljuhús, fræðslusetur um umhverfismál og sýningarhús um sjálfbærar byggingar, um helgina þegar Jóhann Óli Hilmarsson, formaður Fuglaverndunarfélags Íslands, hélt þar fyrirlestur um fugla og fuglaskoðun. Sesseljuhús er í Sólheimum í Grímsnesi

Að sögn Bergþóru Hlíðkvist Skúladóttur forstöðumanns kynnti Jóhann Óli Fuglavefinn, netsíðu ætlaða fuglaáhugafólki, en að því loknu var gengið um nágrennið og fuglar skoðaðir. Bergþóra segir góðan róm hafa verið gerðan að fræðslunni og víst sé að margir hafi áhuga á að þekkja fugla.

Fyrirlestur Jóhanns Óla var sá fyrsti í röð þriggja fræðslufunda sem Sesseljuhús stendur fyrir um þessar mundir. Næsti fundur verður á jarðfræðilegum nótum en á þeim þriðja verður sjónum beint að ríki plantnanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×