Segir forseta borgarstjórnar í fullkominni afneitun 19. maí 2008 10:57 Stutt er síðan Össur setti ofan í við Gísla Martein Baldursson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og flokksbróður Hönnu Birnu. MYND/GVA
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar, í fullkominni afneitun þegar hún segi allt sé í stakasta lagi hjá meirihlutanum í borginni. Í pistli á heimasíðu sinni leggur Össur út af viðtali sem Sigmundur Ernir Rúnarsson átti við Hönnu Birnu í þættinum Mannamáli á Stöð 2 í gærkvöld. Össur segir vandamál Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hafa kristallast vel í viðtalinu en eins og fram hefur komið mælist fylgi við flokkinn í borginni í kringum 30 prósent nú. „Forseti borgarstjórnar taldi greinilega ekki að það væri nokkuð aðfinnsluvert við framgöngu sinna manna. Hanna Birna átti varla nógu sterk lýsingarorð til að lýsa því hversu yfirmáta stolt hún væri af verkum sínum og borgarstjórnarflokksins. Hún var stolt af eindrægninni innan flokksins, stolt af samstöðunni innan hópsins, og hún lagði sérstaka lykkju á leið sína í viðtalinu til að taka það fram hversu sérstaklega ánægð hún væri með Ólafs F. Magnússon sem borgarstjóra.Þegar Sigmundur Ernir spurði hana hvort undirrót fylgishrunsins væri ekki barátta smákónganna í borgarstjórnarflokknum hváði hún í forundran og spurði fullkomlega gáttuð: "Hvaða smákóngar?" - Þegar Sigmundur kvaðst geta bent á sjö varð hún enn þá meira hissa," segir Össur.Nánast sjálfgefið Vilhjálmur taki við sem borgarstjóriÖssur segir enn fremur að helstu tíðindin úr þættinum hafi verið þáu að það virðist nánast sjálfgefið af hálfu Hönnu Birnu að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson taki við borgarstjórastólnum á næsta ári. „Hanna Birna tvítók að hann væri númer eitt á listanm og hefði þar að auki staðið sig afburða vel áður en meirihlutinn slitnaði á sínum tíma," segir Össur enn fremur og bætir við: „Skýring hennar á því afhverju meirihlutinn sprakk á sínum tíma var álíka veruleikatengd. Slitin voru eingöngu ódáminum Birni Inga Hrafnssyni að kenna, en fráleitt að þau hefðu haft eitthvað með sundurlyndi og pólitíska valdagræðgi innan borgarstjórnarflokks íhaldsins að gera."Össur segir enn fremur að út frá orðum Hönnu Birnu megi lesa að allt sé í stakasta lagi og að hún hafi nánast verið grátbólgin yfir afrekum meirihlutans. „Á fræðimáli heitir þetta sennilega að vera í fullkominni afneitun," segir Össur.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira