Innlent

Loftþrýstingur yfir landinu veldur góða veðrinu

Nanna Hlín Halldórsdóttir skrifar
Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur.
Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur.

Veðrið hefur verið óvenju hlýtt og gott það sem liðið er af sumri. Þó að Íslendingar hafi oft brennt sig á að vonast eftir að slík tíð haldi áfram þá ætti að vera ágætis líkur á áframhaldandi góðviðri samkvæmt Sigurði Þ. Ragnarssyni eða Sigga stormi, veðurfréttamanninum góðkunna.

Ástæðan fyrir góða veðrinu er að sögn Sigga hár loftþrýstingur sem leikið hefur lausum hala yfir landinu og ýtt öllum lægðum á braut. Hann bendir á í samtali við Vísi að sterkar vísbendingar hafi verið fyrir því í veðurlagsspáum að sumarið yrði svipað og í fyrra.

,,Um leið og það er dálítil lognmolla þá þykir fólki oft hlýrra en það raunverulega er" segir Siggi til skýringar á hví manni þykir heitara en tölurnar segja.

,,Ætli veðurguðirnir séu ekki að reyna að hjálpa okkur á þessum erfiðu tímum" segir Siggi og bendir á að ferðaþjónustan blómstri þegar slík veðurblíða ríkir.

En allur er varinn góður og líkur eru á eilítilli norðanátt framundan sem gæti haft í för með sér einhverja kólnun, sérstaklega á Norðurlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×