Innlent

Ísbjörn ekki kind

Leitað hefur verið að þriðja ísbirninum í Skagafirði í dag eftir að tvær konur tilkynntu að þær hefðu séð bjarndýr við Bjarnarfell í gærkvöldi. Konurnar segjast sannfærðar að um ísbjörn hafi verið að ræða en ekki hest eða kind.

Konurnar voru á gangi við Bjarnarfell á Skaga um níu leytið í gærkvöldi þegar þær sá eitthvað hvítt og stórt sem þær töldu að væri ísbjörn. Þær sáu hann fyrst í um sjö til átta hundruð metra fjarlægð. Þegar þær komu nær honum sáu þær hann standa upp og ganga frá þeim. Þær eru sannfærðar að um ísbjörn hafi verið að ræða en ekki hest eða kind.

Þær tóku mynd og höfðu samband við lögregluna. Myndin er þó nokkuð óskýr. Lögreglan hóf leit á svæðinu strax í gær. Notast var við tvær flugvélar sem fóru yfir svæðið en þoka gerði þeim erfitt fyrir. Leit hélt áfram í dag og tók þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, þátt í henni. Ekkert hefur þó sést til ísbjarnarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×