Innlent

Bílbruni við Krókháls

Eldur kviknaði í mannlausum bíl sem stóð á bílastæði við Krókháls í Reykjavík í nótt. Hann skíðlogaði þegar slökkviliðið kom á vettvang, örskömmu eftir að tilkynnt var um eldinn, og þrátt fyrir að eldurinn væri slökktur á skammri stund, er bíllinn ónýtur. Eldsupptök eru ókunn, en rannsókn málsins beinist meðal annars að því hvort kveikt hafi verið í honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×