Leggur til veigamiklar breytingar á stofnanakerfi samgöngumála 26. júní 2008 15:20 Héðinsfjarðargöng. Lagt er til að reglur og aðferðir verði þróaðar „sem stuðla að hagkvæmari og árangursríkari samgönguframkvæmdum en verið hafa,“ eins og það er orðað.
Ríkisendurskoðun leggur til að stjórnvöld kanni möguleika á því að gegra viðamiklar breytingar á stofnanaskipan samgöngumála hér á landi. Auk þess er lagt til að þróaðar verði aðferðir sem stuðla að hagkvæmari og árangursríkari samgönguframkvæmdum en hingað til hefur tíðkast að ráðast í. Í nýrri skýrslu frá Ríkisendurskoðun sem ber heitið „Samgönguframkvæmdir", er því beint til yfirvalda að kannaðir verði möguleikar á því að „sjálfstæðri stofnun verði falið að annast alla stjórnsýslu á því sviði. Annarri stofnun verði falin umsýsla allra samgönguframkvæmda og þeirri þriðju að annast rekstur og viðhald samgöngumannvirkja. Óháð slíkum breytingum þarf jafnframt að þróa reglur og aðferðir sem stuðla að hagkvæmari og árangursríkari samgönguframkvæmdum en verið hafa," segir í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun. Stjórnsýsluúttektin beinist bæði að „skipulagi og stjórnun Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar Íslands og að samgönguframkvæmdum þeirra og Flugstoða ohf. Auk þess er horft til hugsanlegra breytinga á stofnanaskipan samgöngumála sem tekur til áðurnefndra stofnana auk Flugmálastjórnar og Umferðarstofu." Í skýrslunni kemur fram að skipurit Vegargerðarinnar og Siglingastofnunar eru í „meginatriðum rökrétt þótt Vegagerðinni hafi ekki gengið sem skyldi að innleiða skipurit sitt. Þá hefur rekstur stofnananna nær undantekningarlaust verið innan fjárheimilda. Báðar hafa stofnanirnar einnig lagt áherslu á að byggja upp gæðakerfi og hefur Siglingastofnun náð því að fá hluta starfseminnar gæðavottaðan." Ríkisendurskoðun er samt á því að samgönguáætlunum sé breytt „of mikið og of ört og komi það niður á markvissum undirbúningi framkvæmda. Þá þurfi að leggja aukna áherslu á að meta og taka mið af arðsemi framkvæmda og halda betur utan um kostnaðaráætlanir á öllum undirbúningsstigum þeirra." Stofnunin vill því beina því til stjórnvalda að kannaðir verði möguleikar á því að sjálfstæð stofnun taki við stjórnsýsluverkefnum Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar auk verkefna Flugmálastjórnar og Umferðarstofu. „Þá verði annarri stofnun falin umsýsla allra samgönguframkvæmda, þ.e. að móta og undirbúa samgönguáætlun og að sjá um framkvæmd áætlunarinnar eftir samþykkt hennar á Alþingi, m.a. hönnun mannvirkja, gerð kostnaðaráætlana, útboð framkvæmda og eftirlit með þeim. Sú stofnun taki við verkefnum frá Siglingastofnun, Vegagerðinni, Flugstoðum ohf. og samgönguráðuneytinu. Að lokum verði ríkisfyrirtæki falið að annast rekstur og viðhald samgöngumannvirkja, þ.e. vegakerfisins og flugvalla, auk tengds búnaðar, s.s. vita og upplýsingakerfa sem stýra umferð flugvéla og skipa. Það taki við verkefnum frá Siglingastofnun, Vegagerðinni og Flugstoðum ohf." „Óháð slíkum breytingum telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að huga að reglum og aðferðum sem stuðlað gætu að hagkvæmari og árangursríkari samgönguframkvæmdum en nú tíðkast. Meðal slíkra atriða má nefna agaðri framkvæmd samgönguáætlunar til að minnka frávik frá henni og vandaðri greiningu ólíkra valkosta, þar sem m.a. væri tekið tillit til stofnkostnaðar við framkvæmdina, viðhalds- og rekstrarkostnaðar, afkastagetu vegar, styttingu ferðatíma, veðurfarsaðstæðna, slysatíðni og byggðasjónarmiða. Þá þyrfti að setja skýrari staðla um vegagerð og leitast við að fylgja þeim. Sömuleiðis þyrfti að nýta stærðarhagkvæmni betur en gert hefur verið. Að lokum telur Ríkisendurskoðunar að ábyrgð á mengunarvörnum ætti að vera hjá Siglingastofnun eða nýrri stjórnsýslustofnun samgöngumála ef henni verður komið á fót," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira