Innlent

Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu strandaglópa

Björgunarsveitarmenn þurftu að aðstoða fólk sem hugðist fara yfir Steingrímsfjarðarheiði í nótt, en heiðin var lokuð sökum ófærðar. Að sögn lögreglu urðu fjölmargir strandaglópar á Hólmavík vegna ófærðar. Björgunarsveitarmenn þurftu einnig að koma til hjálpar fólki sem var á ferð á Suðurfjörðum.

Umferð hefur aftur verið hleypt á um Steingrímsfjarðarheiði. Fjallvegurinn um Klettsháls á sunnanverðum Vestfjörðum er ófær og er þjóðvegurinn milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur því lokaður, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar, en mokstur stendur yfir. Þá er þæfingsfærð á Dynjandis- og Hrafnseyrarheiði.

Á Holtavörðuheiði eru hálkublettir og éljagangur, á Öxnadalsheiði er hálka og þungfært er yfir Lágheiði en mokstur stendur þar yfir. Á Austurlandi er Hellisheiði eystri, milli Héraðs og Vopnafjarðar, ófær og þungfært er um Vatnsskarði eystra til Borgarfjarðar en mokstur í gangi. Þá er hált á Fjarðarheiði og þæfingsfærð er yfir Öxi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×