Íslendingar verða ekki skuldsettasta þjóð í heimi 27. október 2008 14:53
Íslendingar verða ekki skuldsettasta þjóð í heimi þrátt fyrir þau lán sem tekin verða á næstunni vegna efnahagsþreninganna. Hins vegar hefur engin þjóð fengið jafnmikinn skell vegna efnaghagskreppunnar. Þetta sagði Ásmundur Stefánsson, ráðgjafi stjórnvalda, á fundi efnahags- og skattanefndar Alþingis í dag. Fram kom í máli Ásmundar að skuldirnar nú væru 30 prósent af landsframleiðslu en myndu hækka. Ekki nefndi hann þó neina tölu í því samhengi. Nefndarmenn inntu þá Ásmund og Friðrik Má Baldursson, prófessor við HR, eftir því í hverju efnahagsáætlun stjórnvalda fælist, en hún er forsenda samstarfsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Fram kom í máli Ásmundar og Friðriks að innviðir íslensks samfélags væru með öðrum hætti en flestra þeirra landa sem sótt hefðu um aðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á liðnum árum. Efnahagsáætlun stjórnvalda væri almenns eðlis en þó með efnislegum fyrirætlunum. Í raun væri um að ræða yfirlýsingu frá íslenskum stjórnvöldum að þau myndu standa við að greiða af láninu og undir þeirri ábyrgð sem því fylgdi. Ekki lægi fyrir þykk bók um áætlunina en unnið yrði að henni á næstu misserum. Þar yrði tekið mið af spám bæði Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins um þróun efnahagsmála. Það væri í höndum stjórnvalda og Alþingis að vinna að aðgerðum til þess að reisa efnahag landsins við. Nefndarmenn allra flokka lýstu yfir ánægju með fundinn í efnahags- og skattanefnd og sögðu hann hafa varpað ljósi á stöðu mála. Voru flestir á því að það hefði verið eina í stöðunni að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en þar með væri verkinu ekki lokið. Við stæðum frammi fyrir erfiðu verkefni.
Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Íranir skjóta á Ísraela Erlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Fleiri fréttir 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjá meira