Héraðsdómur braut Barnasáttmála SÞ 19. ágúst 2008 18:40
Héraðsdómur Norðurlands Eystri braut Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna með sýknudómi yfir karlmanni, sem ítrekað beitti unga drengi líkamlegu ofbeldi. Þetta er mat Barnaheilla, sem sjá ástæðu til að hvetja Alþingi til að endurskoða barnaverndarlögin. Karlmaðurinn var kærður fyrir líkamsárás og brot á barnaverndarlögum, eftir að hafa ítrekað beitt tvo drengi 4 og 6 ára líkamlegum refsingum eða flenginginum. Hann var fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra, sýknaður af báðum ákærum. Í dómnum segir meðal annars að almennt séð varði það við almenn hegningarlög að slá mann nauðugan á rassinn með flötum lófa svo að undan roðnar. ,,Til þess sé hins vegar að líta að hugsanlega tíðkist eitthvað, eða hafi tíðkast, að flengja börn. Verði að gæta að því að ekki verði öðru vísi litið á en að ákærði hafi flengt drengina með samþykki móður þeirra, í tilefni af því að þeir höfðu sýnt af sér óþekkt, þótt ekki liggi fyrir í hverju hún hafi falist." Jónína vísar hvort tveggja til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Barnaverndarlaga og segir dóminn ganga gegn ákvæðum þeirra. Þau séu nægilega skýr til að dæma drengjunum í vil. Þar segir meðal annars "Hver sem beitir barn refsingum, hótunum eða ógnunum og ætla má að slíkt skaði barnið andlega eða líkamlega skal sæta sektum eða fangelsi allt að þremur árum." Það er mat Barnaheilla að kveði lögin ekki nógu skýrt á um bann við líkamlegum refsingum þurfi að endurskoða þau, þannig að enginn vafi leiki á að líkamlegar refsingar séu ekki leyfðar hvorki í uppeldislegum tilgangi né öðrum.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira