Innlent

Kveikt í húsi á Ísafirði í tvígang

MYND/GVA

Kveikt í húsi á Ísafirði í tvígang með nokkurra daga millibili og rannsakar lögregla nú hver hafi verið þar að verki.

Í tilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að slökkvilið og lögregla hafi tvisvar verið kölluð að húsnæðinu að Suðurtanga 2 á Ísafirði vegna elds, annars vegar miðvikudaginn 20. ágúst og hins vegar mánudaginn 25. ágúst. Niðurstaða vettvangsrannsóknar lögreglunnar er sú að um íkveikju af mannavöldum hafi verið að ræða í bæði skiptin. Biður lögregla alla þá sem einhverja vitneskju hafa um þessi tvö tilvik að hafa samband í síma 450-3730.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×