Harmar að Breiðavíkursamtökin hafi kynnt frumvarpsdrög um bætur 4. september 2008 12:33 MYND/Vilhelm
Forsætisráðuneytið harmar að Breiðavíkursamtökin skuli hafa valið þá leið að kynna fyrirliggjandi drög að frumvarpi um bætur til fyrrverandi vistmanna á Breiðavík í fjölmiðlum án þess að leita samþykkis eða samráðs um slík. Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins og þar er jafnframt sagt að frumvarpsdrögin séu vinnuskjal. Eins og fram hefur komið í fréttum er lagt til að vistmenn á Breiðavík á árunum 1959-1972 fái á bilinu 375 þúsund til tvær milljónir króna í sanngirinisbætur vegna illrar meðferðar sem vistmennirnir sættu. Forsvarsmenn Breiðavíkursamtakanna hafa sagt bæturnar snautlegar. Í tilkynningu forsætisráðuneytisins segir að í kjölfar skýrslu um Breiðavíkurmálin hafi ríkisstjórnin, þrátt fyrir að engin lagaskylda standi til þess, ákveðið fela Viðari Má Matthíassyni prófessor, einum helsta sérfræðingi hér á landi á sviði skaðabótaréttar, að semja frumvarp um svokallaðar sanngirnisbætur vegna misgjörða við vistun á opinberum stofnunum eins og Breiðavíkurheimilinu.„Í frumvarpsdrögunum er í samræmi við þau sjónarmið sem forsætisráðherra kynnti á Alþingi 31. mars 2008 leitast við að setja fram reglur sem tryggi að þeir, sem orðið hafa fyrir varanlegu tjóni vegna vistunar á stofnunum er falla undir l. nr. 26/2007, hljóti sanngjarnar bætur í samræmi við bótafjárhæðir á öðrum skyldum sviðum íslensks réttar og réttarframkvæmdar. Drög að þessu frumvarpi hafa verið til meðferðar í forsætisráðuneytinu frá því á sl. vori, en hafa ekki verið lögð fyrir ríkisstjórn né þingflokka hennar og þarafleiðandi ekki heldur fyrir Alþingi.Að ósk forsvarsmanna Breiðavíkursamtakanna voru þeim og lögmanni þeirra kynnt þessi drög í trúnaði 11. ágúst sl. Athugasemdir Breiðavíkursamtakanna bárust ráðuneytinu fyrir nokkru og er verið er að fara yfir þær en ljóst er að hugmyndir þeirra um bótafjárhæðir eru fjarri því sem frumvarpið gerir ráð fyrir," segir forsætisráðuneytið. Því harmi ráðuneytið að Breiðavíkursamtökin hafi kynnt frumvarpsdrögin fyrir fjölmiðlum.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira