Innlent

„Evra þýðir innganga í ESB, það sagði ég“

Breki Logason skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir MYND/GVA

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að Alf Skjeset blaðamaður norska dagblaðsins Klassekampen hafi ekki haft rangt eftir sér í viðtali sem hann tók við hana. Af fréttum í gær mátti skilja að Þorgerður teldi að eina leiðin fyrir okkur væri innganga í Evrópusambandið. Hún segir það hinsvegar eingöngu eiga við peningamálastefnuna því evran verði ekki tekin upp nema með inngöngu.

„Þetta er fínt viðtal hjá honum Alf og ég lagði sérstaka áherslu á að það yrði tekið upp. Ég er nefnilega ekki að segja neitt nýtt. Ég hef sagt að við ættum að fara í aðildarviðræður með þeim fyrirvörum sem snúa að sjávarútvegi og annað," segir Þorgerður í samtali við Vísi.

Þorgerður segir að það sem snúi að peningamálastefnunni hafi verið haft rétt eftir sér en þar hefur hún verið að taka undir með aðalhagfræðingi Seðlabanka Íslands. „Ef við tölum um peningamálastefnuna þá sé ég ekki lausn utan Evrópusambandsins ef við ætlum að taka upp evru. Það er annaðhvort að halda í krónuna eða evra. Og evra þýðir innganga í ESB, það sagði ég," segir Þorgerður.

Hún segir hinsvegar að þýðing Ríkisútvarpsins á frétt Klassekampen síðan í gær þar sem því var haldið fram að hún teldi einu lausnina í okkar málum almennt séð vera innganga í Evrópusambandið ekki vera rétta.


Tengdar fréttir

Staðfestir að hann eigi hljóðritun af símtali við Þorgerði

Alf Skjeset, blaðamaður norska blaðsins Klassekampen, staðfesti í samtali við Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í morgun, að hann eigi hljóðritað samtal milli sín og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þar sem meðal annars er rætt um framtíðarstefnu Íslendinga í peningamálum.

Rangt haft eftir Þorgerði varðandi ESB

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa sagt að Evrópusambandið væri okkar eini möguleiki líkt og norska dagblaðið Klassekampen heldur fram í dag. Þorgerður segist hafa farið í viðtal við blaðið fyrir 10 dögum og þar hafi hún sagt að við ættum að fara í aðildarviðræður. Hún stendur við þá skoðun sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×