Innlent

Steingrímur J: Hin kalda hönd IMF er lögst á stýrið

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG óttast að stýrivaxtahækkun Seðlabankans sé aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal þegar IMF fer að ráðskast með málin hér á landi. „Ég vissi þetta upp á mína tíu fingur að það yrði mjög stíf krafa af þeirra hálfu að keyra á svona harðlínupeningastefnu og það myndi þýða mjög vonda hluti í vöxtum," segir hann.

„Það væri gaman að heyra í þeim sem mest fögnuðu aðkomu IMF því það þarf enginn að velkjast í vafa um hvaðan fyrirmælin koma," segir Steingrímur og áréttar að vissulega sé erfitt ástand í gengismálunum. „En þetta er samt alveg rosaleg aðgerð gagnvart öllum sem eru með innlendar skuldir. Þetta er því bara á kostnað heimilanna og minni fyrirtækja sem eru með íslensk lán og það er þá ofboðslega dýru verði keypt að fara þessa leið."

Steingrímur telur að það hefði verið miklu nærtækara að beita mun harðari takmörkunum í gjaldeyrisviðskiptum. „Ég held að það sé ekkert annað í stöðunni hvort sem er að beita takmörkunum á stærri fjármagnshreyfingar og ég veit nú ekki annað en að það standi til hvort sem er. Þetta finnst mér því mjög harkalegt," segir Steingrímur og bætir við: „Ég óttast að þetta sé bara forsmekkurinn af því sem koma skal þegar þessi kalda hönd leggst á stýrið."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×