Sígarettusala í fríhöfnum um átta prósent af heildarsölunni 30. október 2008 08:57
Um 1,2 milljónir pakka af sígarettum voru seldar í fríhafnarverslunum á Keflavíkurflugfelli, Reykjavíkurflugvelli og Akureyrarflugvelli í fyrra. Þetta kemur fram í svari Árna Mathiesen fjármálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Ásta spurði hversu mikið af tóbaki væri flutt tollfrjálst inn í landið í gegnum fríhafnirnar og hversu stór hluti það væri af heildarsölu tóbaks. Fram kom í svörum ráðherra að um 14,6 milljónir sígarettupakka hefðu alls verið seldar hér á landi í fyrra og því væri sala í fríhafnarverslunum um átta prósent af heildarsölunni. Algengt verð á sígarettupakka í fríhöfn er um 300 krónur en hann er rúmlega tvöfalt dýrari í búðum hér þar sem búið er að leggja tóbaksgjald á hann. Fram kom í svari ráðherra að árlegt tekjutap ríkisins af verslun með tóbak í fríhöfnum landsins væri um 490 milljónir króna. Ásta spurði einnig hvaða rök væru fyrir því að selja tóbak í fríhafnarverslun hér á landi. Ráðherra svaraði því til að tóbak væri dæmigerð vara í fríhafnarverslunum um allan heim. „Verði skattfrjálsri tóbakssölu hætt í fríhafnarverslunum á Íslandi má gera ráð fyrir því að meginhluti þeirrar tóbakssölu sem í dag fer fram hérlendis flytjist til erlendra fríhafna. Slík ráðstöfun mundi óhjákvæmilega hafa neikvæð áhrif á tekjuöflunarmöguleika og umsvif innlendrar fríhafnarverslunar, jafnframt því að auka á útstreymi gjaldeyris. Öll rök standa því til þess að skattfrjálsri tóbakssölu verði viðhaldið í íslenskum fríhöfnum, ella væri verið að stuðla að flutningi verslunar úr landi," segir ráðherra.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira