Erlent

Íslendingur í Texas segist hafa verið heppinn

Frá borginni Galveston í Texas.
Frá borginni Galveston í Texas. MYND/AFP

Björgunarmenn í Texas leita nú á stóru svæði að fólki sem kann að vera í vanda statt vegna fellibylsins Ike, sem fór yfir fylkið um helgina.

Íslensk kona sem býr í Houston segir að fellibylurinn hafi farið yfir með miklum látum og hún verði nú rafmagnslaus í tvær til þrjár vikur

Gífurlegar skemmdir urðu í Galveston-borg, sem er byggð á sandfrifjum við ströndina. Talið er að 140 þúsund íbúar hafi hunsað fyrirmæli um að fara burt úr borginni og að einhverjir þeirra kunni að vera í rústum húsa sem bylurinn eyðilagði.

Rúmlega þrjár milljónir manna eru án rafmagns í Texas, þar á meðal margir í Houston, fjórðu stærstu borg Bandaríkjanna. Meðal þeirra er bára Bryndís Gestsdóttir, sem býr í Houston og var í húsi sínu á meðan bylurinn gekk yfir.

Erfitt er um aðdrætti fyrir þá sem eftir urðu því vegir eru lokaðir og fólki er sagt að halda sig helst inni. Verslanir hafa hækkað verð, jafnvel margfalt.

Sums staðar er nú búið að koma upp eins konar súpueldhúsum. Bára segir að hún hafi verið heppin miðað við marga aðra sem misstu hús sín í ofsaveðrinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×