Innlent

Ásgerður Jóna vonar að lausn finnist á húsnæðismálunum

Á annað þúsund manns njóta aðstoðar í hverjum mánuði.
Á annað þúsund manns njóta aðstoðar í hverjum mánuði.

Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, fagnar því að borgayfirvöld ætli sér að vinna að lausn á þeim rekstrarvanda sem samtökin búa við en þau hafa ekki getað greitt húsaleigu til borgarinnar sökum fjárskorts. Hún segist þó ætla að bíða og sjá til hvaða aðgerða verði gripið því hún hafi leitað eftir styrkjum frá borginni í nokkur ár án árangurs.

„Ég er búinn að reyna núna í nokkur ár og alltaf fengið synjun án útskýringar," segir Ásgerður Jóna í samtali við Vísi. „En þetta eru jákvæð viðbrögð og við verðum bara að sjá hvert þetta leiðir." Hún segir að starfsemi Fjölskylduhjálparinnar standi og falli með því að lausn verði fundin á leigumálum samtakanna. „Leigan er 88 þúsund á mánuði og í staðinn getum við hjálpað á annað þúsund manns í hverjum mánuði. Þannig að margfeldisáhrifin fyrir borgina eru gífurleg. Þessum 88 þúsundum króna sem borgin þyrfti að sjá af er því mjög vel varið.

Að sögn Ásgerðar Jónu koma um það bil 130 fjölskyldur í hverri viku til Fjölskylduhjálparinnar. „Við töldum það í fyrra og þá þáðu sextán þúsund munnar mat hjá okkur. Og ef þessum 88 þúsund krónum er ekki vel varið til þess að greiða niður þessa leigu þá veit ég ekki hvað. Ég held að það væri nú leitun að því í borgarkerfinu að svona vel væri farið með peninga." Ásgerður bætir því við að bókhald samtakanna sé opið og það geti allir kynnt sér sem það vilja. „Við erum eina líknarfélagið þar sem fylgiskjöl í bókhaldi liggja frammi."

„Maður lifir bara í voninni um að borgaryfirvöld sjái ljósið og átti sig á því starfi sem verið er að vinna hér í Fjölskylduhjálpinni, " segir Ásgerður Jóna Flosadóttir.




Tengdar fréttir

Borgin vill leysa vanda Fjölskylduhjálparinnar

Reykjavíkurborg vinnur að lausn á rekstrarvanda Fjölskylduhjálparinnar og hyggst boða forsvarsmann hennar á sinn fund, að sögn Stellu Víðisdóttur, sviðsstjóra Velferðarsviðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×