Innlent

Óútskýrð ljós sáust á himni

Loftsteinn. Myndin tengist ekki þessari frétt.
Loftsteinn. Myndin tengist ekki þessari frétt.

Ljósfyrirbrigði sást á himni við suðurströndina undir klukkan ellefu í gærkvöldi og bárust lögreglunni á Hvolsvelli, í Vestmannaeyjum og Veðurstofunni nokkrar tilkynningar um það.

Frá Hlíð undir Eyjafjöllum, þar sem veður var heiðskírt og stjörnubjart, lýsti þetta sér sem skær blossi, eins og neon-grænn, og síðan komu tvær rákir eins og eftir þotur, nema mun breiðari. Þær sáust í hátt í hálftíma. Sjónarvottur í Vestmannaeyjum lýsir rákunum sem reyk. Talið er hugsanlegt að ljósagangurinn stafi frá loftsteini, eða -steinum, sem hafi komið inn í gufuhvolfið og brunnið upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×