Innlent

Tvær konur slógust á Ísafirði

Nokkuð var um tilkynningar um slagsmál í nágrenni við veitingastaði á Ísafirði um helgina. Aðfaranótt laugardagsins var einn maður færður í fangaklefa eftir slagsmál.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á vestfjörðum. Þar segir ennfremur:

„Á aðfaranótt sunnudagsins hafði lögreglan afskipti af nokkrum aðilum vegna slíkra mála. Um kl. 03:30 var tilkynnt um líkamsárás á veitingastað en þar höfðu tvær konur tekist á. Kæra vegna líkamsárásar hefur verið lögð fram vegna þessa atviks. Þá var einn aðili vistaður í fangageymslu eftir slagsmál um kl. 04:00 þessa nótt.

Lögreglumenn þurftu að stöðva slagsmál utan við veitingastaði í nokkrum tilfellum en ekki er vitað til þessa að frekari eftirmál hafi orðið af þeim atvikum."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×