Bankarnir að verja sig fyrir veikingu en ekki taka stöðu gegn henni 3. nóvember 2008 12:26
Bankarnir voru að verja sig fyrir veikingu krónunnar - ekki að taka stöðu gegn krónunni, segir Yngvi Örn Kristinsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. Mánuðum saman hefur það gengið fjöllunum hærra að stóru bankarnir þrír á Íslandi, meðan þeir voru enn í einkaeigu, hafi markvisst tekið stöðu gegn krónunni og þannig unnið að falli hennar. Morgunblaðið fullyrðir í dag að samkvæmt heimildum þess þá hafi skoðun á efnahagsreikningum bankanna eftir hrunið sýnt stórfelldar stöðutökur gegn íslensku krónunni. Furðu hafi sætt hversu háum fjárhæðum innlend og erlend fjárfestingarfélög hafi verið tilbúin að veðja á að krónan myndi veikjast. Bankarnir hafi haft milligöngu um slíka samninga og að heildarupphæð þeirra samninga nemi um 600 til 720 milljörðum króna. Það skal tekið fram að viðskipti sem þessi eru í alla máta lögleg. Fréttastofa talaði í morgun við menn hjá tveimur bönkum og Seðlabankanum -en enginn gat staðfest þessar tölur. Ekki náðist samband við Fjármálaeftirlitið. Yngvi Örn Kristinsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, sagði í samtali við fréttastofu að gjaldeyrisstaða bankanna væri háð reglum og eftirliti Seðlabankans og þeir skiluðu daglegum skýrslum til Seðlabankans um stöðuna. Bankarnir hafi á viðskiptalegum forsendum reynt að verja sig gegn gengissveiflum krónunnar með því að auka gjaldeyrisforða sinn. Það sé ekki að taka stöðu gegn krónunni heldur varnir gegn sveiflum í gengi.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira