Lögreglumenn með góð ráð til varnar innbrotum 16. september 2008 21:16
Undanfarið hefur verið brotist inn í nokkur hús í Grafarvogi að degi til. Að því tilefni tóku lögreglumenn í hverfinu saman nokkur atriði sem vert er að hafa í huga við innbrotavarnir. Hér fyrir neðan má sjá þessi góðu ráð. Hvar er helst brotist inn? Algengast er að brotist sé inn í sérbýli, rað- og einbýlishús og einnig íbúðir á jarðhæðum fjölbýlishúsa. Þeir sem að verki eru sjá gjarnan hvort bifreiðar eru í innkeyrslum húsa og jafnvel hringja bjöllu til að athuga hvort einhver sé heima og þykjast síðan hafa farið húsavillt ef komið er til dyra. Hvernig er farið inn? Algengast er að farið er inn um opnanlega glugga eða dyr í skjóli trjáa eða skjólveggja og þá helst að baki húsa. Hvenær er farið inn? Nánast undantekningarlaust eiga innbrot á heimili sér stað að degi til, öfugt við innbrot í bifreiðar, á hefðbundnum vinnu- og skólatíma. Hvað er til ráða? Huga ber vel að frágangi glugga og dyra sem auðvelt getur verið að spenna upp ef rifa er skilin eftir á þeim. Hvetjum við nágranna til að tala saman og taka póst hvers annars þegar farið er í frí svo að hann safnist ekki fyrir og verði augljóst merki þess að fólk sé ekki heima. Einnig bendum við á að ráð er að fá nágranna, sem eiga e.t.v. fleiri en eina bifreið, til að leggja bifreiðum í innkeyrslur mannlausra húsa, þegar farið er í frí eða vinnu, svo að það líti út sem einhver sé heima. Innbrot í bifreiðar: Skiljið ekki eftir verðmæti á glámbekk í bifreiðum, tölvur, töskur, radarvara, gps tæki né annað því að slíkur varningur freistar þjófa hvað mest. Upplýsingar: Allar upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir geta hjálpað lögreglu við að koma í veg fyrir afbrot og einnig til að upplýsa afbrot. Verið ófeimin við að hafa samband. Upplýsingar sem fólki kunna að þykja lítilfjörlegar geta orðið til að upplýsa mál.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Innlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Fleiri fréttir Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sjá meira