Sjóstangveiðifyrirtækin hafa klárlega skrúfað upp verðið á leigukvóta 15. júní 2008 15:22 Hallgrímur Guðmundsson.
Hallgrímur Guðmundsson, formaður í Framtíð, samtökum sjálfstæðra í sjávarútvegi, segir það bull að fyrirtækið Hvíldarklettur hafi aðeins keypt um 1300 kíló á því verði sem nú er í gangi á kvótaleigumarkaði. Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við Elías Guðmundsson, sem rekur sjóstangaveiðifyrirtækið Hvíldarklett. Trillusjómenn hafa haldið því fram að sjóstangaveiðifyrirtækin hafi sprengt upp verðið á kvótaleigumarkaðinum en Elías segir það staðlausa stafi enda hafi hafnn aðeins keypt rúmt tonn. „Þetta er bara bull," segir Hallgrímur hins vegar og vísar í upplýsingar á heimasíðu Fiskistofu. „Þar sést svart á hvítu að Hvíldarklettur hefur keypt 44 tonn af þorski, 1,6 tonn af ýsu, 6 tonn af ufsa og 2,7 tonn af steinbít." Hann segir því alveg klárt að fyrirtækin hafi sprengt upp verðið á markaði. „Þeir rukka 20 þúsund krónur á bát fyrir daginn og síðan mega þeir fénýta aflan. Þannig að í raun eru þeir búnir að ná inn fyrir kostnaði á kvótaleigunni áður en haldið er úr höfn," segir Hallgrímur og bætir við að fyrirtækið hafi einnig fengið úthlutað byggðakvóta. „Það er bara augljóst að þeir skrúfa verðið upp. Þegar framboð er lítið eru þeir í þeirri stöðu að vera búnir að taka við pöntunum og jafnvel greiðslum í ferðir og því verða þeir að ná í leigukvóta, sama hvað það kostar." Hallgrímur bendir einnig á að annað fyritæki, Sumarbyggð hf. í Súðavík geri einnig út hóp báta sem einnig flokkast undir þessar svo kölluðu frístundaveiðar. „Þetta fyritæki hefur leigt til sín 70 tonn af þorski, 8 tonn af steinbít og slatta af öðrum tegundum," segir hann. Sjómenn hafa einnig gert athugasemdir við að sjóstangaveiðimennirnir sem hingað koma séu réttindalausir. Elías svarar því til í Fréttablaðinu að allir sjóstangaveiðimenn þurfi að hafa alþjóðlegt siglingaleyfi. Hallgrímur gefur lítið fyrir slíkt leyfi og segir það á engan hátt vera gilt til að taka þátt í atvinnusjómennsku, sem sjóstangaveiðin sé þegar hún er stunduð eins og tíðkast hjá Hvíldarkletti og Sumarbyggð hf. „Til þess að geta stundað atvinnusjómennsku þarf maður að hafa skipstjórnarréttindi, vélavarðarréttindi auk þess sem maður þarf að hafa lokið námi í Slysavarnaskóla sjómanna," segir Hallgrímur. „Að flagga þessu alþjóðlega siglingaleyfi er álíka gáfulegt og að fara að vinna við köfun með sportkafaraleyfi upp á vasann og taka fullt gjald fyrir," segir hann. „Nú er það ekki svo að við séum á móti þessum atvinnuvegi, öll atvinna og nýsköpun er eitthvað sem er algjörlega nauðsynleg í okkar þjóðfélagi," segir Hallgrímur. „Við erum á móti því að þessi atvinnuvegur sé kvótasettur og keppi þar af leiðandi beint við atvinnusjómenn um kvótann undir nafninu frístundaveiðar. Á þetta var bent á sínum tíma fyrir vægast sagt daufum eyrum ráðamanna." Að lokum bendir Hallgrímur á að það hefði mátt standa að þessum málum á allt annan hátt.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Sjá meira