Landsfundi sjálfstæðismanna flýtt og nefnd um Evrópumál skipuð 14. nóvember 2008 14:38 MYND/Stöð 2
Ákveðið hefur verið að flýta landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem halda átti í október á næsta ári, og verður hann í lok janúar. Þá hefur verið ákveðið að skipa nefnd um Evrópumál. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Valhöll en þar fer fram miðstjórnarfundur vegna efnahagsástandsins. Landsfundurinn verður 29. janúar til 1. febrúar. Mun nefndin sem um ræðir væntanlega ljúka störfum fyrir landsfund og vinnuhópar starfa með henni og fjalla um einstök málefni eins og auðlindir, peningamálastjórn og framtíðargjaldmiðil. Ekki verði eingöngu horft til Evrópusambandsins heldur valkosta Íslands á alþjóðavettvangi. Geir sagði að nú væru gjörbreyttar aðstæður og því teldi forysta flokksins brýnt að flýta landsfundinum og marka stefnu flokksins í öllum þjóðfélagsmálum með tilliti til hinna nýju aðstæðna. Á fundinum yrði kosin forysta og miðstjórn og flokkurinn byggi sig undir það sem fram undan kynna að vera á vettvangi landsmálanna. Þá væri ætlunin að undirstrika grundvallargildin á bak við Sjálfstæðisflokkinn og hnykkja á því að það væri ekki flokksmönnum að kenna að við lentum í núverandi ástandi. Einkaframtak og frelsi einstaklingsins yrðu áfram hugsjónir sem byggt yrði á. Geir sagði enn fremur að verið væri að skoða upp á nýtt hagsmunamat Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum en til þeirrar skoðunar væri ekki gengið á grundvelli trúarbragða heldur á grundvelli hagsmuna Íslands. Það væri flokksmanna á landsþinginu að ákveða stefnuna í þessum efnum. Kristján Þór Júlíusson verður formaður Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins og Árni Sigfússon varaformaður.
Tengdar fréttir Sjálfstæðismenn ræddu ekki stöðu seðlabankastjóra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á blaðamannafundi í Valhöll fyrir stundu að ekki væri hægt að leyna því að sú skoðun sem Jón Steinsson, lektor við Columbia háskólann, setti fram í grein í dag nyti aukins fylgis meðal sjálfstæðismanna. Afstaða forystumanna flokksins væri hins vegar ljós. 14. nóvember 2008 15:09 Hefði viljað sjá skýrari Evrópustefnu Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segist hafa vonast eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn myndi boða skýrari stefnu í Evrópumálum í dag. Aftur á móti sé ákvörðun flokksins sem tilkynnt var um áðan skref í rétta átt. 14. nóvember 2008 16:02 Samfylkingin getur ekki beðið út kjörtímabilið ,,Samfylkingin getur ekki beðið út kjörtímabilið án þess að tekin verði skref í átt að Evrópusambandinu. Við höfum einfaldlega ekki tímann því hann vinnur ekki með okkur," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. ,,Framtíðarsýnin verður að vera skýr." 14. nóvember 2008 15:37 Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Fleiri fréttir Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Sjá meira
Sjálfstæðismenn ræddu ekki stöðu seðlabankastjóra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á blaðamannafundi í Valhöll fyrir stundu að ekki væri hægt að leyna því að sú skoðun sem Jón Steinsson, lektor við Columbia háskólann, setti fram í grein í dag nyti aukins fylgis meðal sjálfstæðismanna. Afstaða forystumanna flokksins væri hins vegar ljós. 14. nóvember 2008 15:09
Hefði viljað sjá skýrari Evrópustefnu Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segist hafa vonast eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn myndi boða skýrari stefnu í Evrópumálum í dag. Aftur á móti sé ákvörðun flokksins sem tilkynnt var um áðan skref í rétta átt. 14. nóvember 2008 16:02
Samfylkingin getur ekki beðið út kjörtímabilið ,,Samfylkingin getur ekki beðið út kjörtímabilið án þess að tekin verði skref í átt að Evrópusambandinu. Við höfum einfaldlega ekki tímann því hann vinnur ekki með okkur," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. ,,Framtíðarsýnin verður að vera skýr." 14. nóvember 2008 15:37