Gagnrýndi málflutningsaðferðir saksóknara 15. maí 2008 13:17 MYND/Anton Brink
Jakob Möller, verjandi Tryggva Jónssonar í Baugsmálinu, gagnrýndi líkt og verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar málflutningsaðferðir ákæruvaldsins fyrir Hæstarétti. Eins og fram hefur komi hélt málflutningur í Baugsmálinu áfram í dag og eftir að Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, hafði lokið máli sínu tók Jakob við. Skjólstæðingur hans er sakaður um bókhaldsbrot og fjárdrátt í starfi aðstoðarforstjóra Baugs þegar félagið var almenningshlutafélag. Jakob krafðist sýknu yfir Tryggva en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa og þá skilorðsbundins dóms. Gagnrýndi hann hvernig settur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, hefði í gær hagað málflutningi sínum með því að leggja fram mikinn fjölda skjala, en greinagerð saksóknara telur ellefu stórar möppur. Þá sagði hann saksóknara hafa vísað ítrekað í gær til gagna í málinu án þess að fjalla um sönnunargildi þeirra. „Þessi vinnubrögð, að koma í veg fyrir að vörnin geti áttað sig á þeim sönnunargögnum sem lögð eru fram, eru alvarlegt brot á jafnræði málsaðila," sagði Jakob. Sagði hann vinnubrögð saksóknara gera varnaraðilum erfiðara að taka á málflutningi saksóknara en um leið auðveldaði þetta þeim verkið þar sem vörnin gæti flutt mál sitt án tillits til þess sem ákæruvaldið hefði sagt. Ekki hefði veirð hægt að fylgja Sigurði Tómasi eftir í gær þegar hann hafi vísað fram og til baka í skjöl. Um ákæruatriðin sagði Jakob meðal annars að ekkert hefði komið fram um að Tryggvi hefði sýnt ásetning eða refsivert gáleysi eins og saknæmisstig kvæðu á um. Settum saksóknara hefði verið tíðrætt um að sakborningar „hlytu" að hafa gert hitt og þetta en deilt væri um hvort tilteknir atburðir hefðu átt sér stað. Eftir hádegi var svo komið að Brynjari Níelssyni, verjanda Jóns Geralds Sullenberger, að flytja mál sitt en málið verður að því loknu lagt í dóm Hæstiréttar.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira