Innlent

Landsfundi sjálfstæðismanna flýtt og nefnd um Evrópumál skipuð

MYND/Stöð 2

Ákveðið hefur verið að flýta landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem halda átti í október á næsta ári, og verður hann í lok janúar. Þá hefur verið ákveðið að skipa nefnd um Evrópumál. Þetta kom fram í máli Geirs H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Valhöll en þar fer fram miðstjórnarfundur vegna efnahagsástandsins.

Landsfundurinn verður 29. janúar til 1. febrúar. Mun nefndin sem um ræðir væntanlega ljúka störfum fyrir landsfund og vinnuhópar starfa með henni og fjalla um einstök málefni eins og auðlindir, peningamálastjórn og framtíðargjaldmiðil. Ekki verði eingöngu horft til Evrópusambandsins heldur valkosta Íslands á alþjóðavettvangi.

Geir sagði að nú væru gjörbreyttar aðstæður og því teldi forysta flokksins brýnt að flýta landsfundinum og marka stefnu flokksins í öllum þjóðfélagsmálum með tilliti til hinna nýju aðstæðna. Á fundinum yrði kosin forysta og miðstjórn og flokkurinn byggi sig undir það sem fram undan kynna að vera á vettvangi landsmálanna.

Þá væri ætlunin að undirstrika grundvallargildin á bak við Sjálfstæðisflokkinn og hnykkja á því að það væri ekki flokksmönnum að kenna að við lentum í núverandi ástandi. Einkaframtak og frelsi einstaklingsins yrðu áfram hugsjónir sem byggt yrði á.

Geir sagði enn fremur að verið væri að skoða upp á nýtt hagsmunamat Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum en til þeirrar skoðunar væri ekki gengið á grundvelli trúarbragða heldur á grundvelli hagsmuna Íslands. Það væri flokksmanna á landsþinginu að ákveða stefnuna í þessum efnum.

Kristján Þór Júlíusson verður formaður Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins og Árni Sigfússon varaformaður.








Tengdar fréttir

Sjálfstæðismenn ræddu ekki stöðu seðlabankastjóra

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á blaðamannafundi í Valhöll fyrir stundu að ekki væri hægt að leyna því að sú skoðun sem Jón Steinsson, lektor við Columbia háskólann, setti fram í grein í dag nyti aukins fylgis meðal sjálfstæðismanna. Afstaða forystumanna flokksins væri hins vegar ljós.

Hefði viljað sjá skýrari Evrópustefnu

Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, segist hafa vonast eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn myndi boða skýrari stefnu í Evrópumálum í dag. Aftur á móti sé ákvörðun flokksins sem tilkynnt var um áðan skref í rétta átt.

Samfylkingin getur ekki beðið út kjörtímabilið

,,Samfylkingin getur ekki beðið út kjörtímabilið án þess að tekin verði skref í átt að Evrópusambandinu. Við höfum einfaldlega ekki tímann því hann vinnur ekki með okkur," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. ,,Framtíðarsýnin verður að vera skýr."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×