Ísbjarnarbúrið var sótthreinsað fyrir komuna til landsins 20. júní 2008 14:07 Búrið var flutt frá Akureyri um Skagafjörð og út á Skagatá. MYND/Valli
Búrið, sem flutt var inn til landsins frá Danmörku þegar fanga átti hvítabjörn sem gekk á landi við Hraun á Skaga fyrr í vikunni, var sótthreinsað fyrir komuna til landsins. Þetta staðfestir Hjalti J. Guðmundusson, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun Spurningar hafa vaknað um það hvort hætta hafi verið á því að dýrasjúkdómar bærust með búrinu frá Danmörku, en það hafði verið geymt í dýragarðinum í Kaupmannahöfn. Innflutningur á hvers kyns landbúnaðartækjum og gripaflutningavögnum er bannaður samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma. Þó eru veittar undanþágur frá banninu með ákveðnum skilyrðum, þar á meðal að þrífa og sótthreinsa tækin með viðurkenndum sótthreinsiefnum. Þar segir einnig að við innflutning á gripaflutningavögnum skulu fjarlægja allt timbur og önnur þau efni sem ekki verði þvegin svo viðunandi sé. Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri auðlinda hjá Umhverfisstofnun, segir að búrið hafi verið þrifið með tilteknum efnum fyrir komuna til landsins. „Þetta er standard verklag og búrið var sótthreinsað," segir Hjalti. Það er nú geymt inni á Akureyri og Hjalti segir aðspurður að hinkrað verði með að senda það úr landi, en hugmyndir eru uppi um að leigja það eða jafnvel kaupa. Að sögn Björns Steinbjörnssonar, dýralæknis hjá Matvælastofnun, hefur málið ekki komið inn á hans borð en hann segir að ef farið hafi verið eftir gildandi reglum hafi búrið átt að vera sótthreinsað. Aðspurður telur hann litlar líkur á því að einhvers konar sjúkdómar berist með búrinu þrátt fyrir að það hafi verið í dýragarðinum í Kaupmannahöfn. „Heilbrigðiskröfur í dýragörðum eru mjög miklar enda fer fjöldi fólks um þá á hverjum degi. Hættan á þessu er hverfandi og í dýragarðinum í Kaupmannahöfn starfa dýralæknar sem fylgjast með þessu," segir Björn.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira