Lögregla kom í veg fyrir flótta af leikskólanum 26. mars 2008 23:53
Betur fór en á horfðist þegar 5 ára drengur var að príla yfir grindverk við leikskóla á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Hinn ungi klifurkappi kom nefnilega ekki standandi niður heldur datt á gangstéttina en fallið var nokkuð. Lögreglumaður við almennt eftirlit sá til drengsins og kom strax til aðstoðar. „Klifurkappinn bar sig vel og virtist ekki hafa orðið meint af en honum var sennilega meira brugðið við að sjá fulltrúa réttvísinnar á staðnum. Sá síðarnefndi var auk þess á lögreglubíl og hafði sett aðvörunarljós í gang en slíkt vekur jafnan eftirtekt hjá yngstu kynslóðinni," segir í tilkynningu frá lögreglunni. „Tveir leikfélagar piltsins voru hinum megin grindverksins, þ.e. á leikskólalóðinni og í nokkru skjóli af trjágróðri sem þarna er, og fylgdust með atburðarásinni. Sjálfsagt hafa þeir ætlað að fylgja foringja sínum á vit ævintýranna en líklegt má telja að hér hafi verið um að ræða misheppnaðan flótta úr leikskólanum," segir ennfremur. Lögregla segir að hætt sé við að drengirnir verði að bíða betri tíma til að skoða heiminn því farið var vel yfir málið á leikskólanum. „Niðurstaðan verður væntanlega sú að þremenningunum verður hér eftir ekki hleypt út á undan öðrum börnum en svo var víst raunin í þessu tilviki. Þess má geta að ungi klifurkappinn hefur nokkurt orð á sér fyrir að príla en eftir þessa reynslu má búast við að hann hafi lært sína lexíu."
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Sjá meira