Sjálfstæðisflokkur hafnar áformum umhverfisráðherra 18. júní 2008 18:30
Sjálfstæðisflokkurin hefur hafnað áformum umhverfisráðherra um landsskipulagsáætlun og verður ráðherrann gerður afturreka með það ákvæði stjórnarfrumvarps að skipulagslögum, sem er til meðferðar Alþingis. Skipulagsvaldið er hjá sveitarfélögunum, samkvæmt gildandi lögum, sem þýðir til dæmis að ef Vesturbyggð leyfir olíuhreinsunarstöð við Arnarfjörð hefur ríkisvaldið engin tæki til að koma í veg fyrir það. Ákvæði um landsskipulagsáætlun í frumvarpi umhverfisráðherra að breyttum skipulagslögum takmarkar þetta sjálfstæði sveitarfélaganna og myndi færa ráðherra og Alþingi vald til knýja sveitarfélögin til að fylgja heildarstefnu, sem ráðherrann markaði í samræmi við stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun. Þannig gæti umhverfisráðherra markað þá stefnu að nóg væri komið af álverum í landinu og Húsvíkingar og aðrir yrðu þá að beygja sig undir það. Menn hafa velt upp því dæmi að ráðherra gæti með samþykki Alþingis knúið Reykvíkinga til að hafa flugvöll áfram í Vatnsmýri ef það teldist varða almannahagsmuni. Sveitarstjórnarmenn í landinu hafa hins vegar mótmælt þessum áformum nokkuð einróma, og nú staðfestir Kjartan Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í umhverfisnefnd Alþingis, að Sjálfstæðisflokkurinn leggist gegn breytingunni.Kjartan segir að það sé vægast sagt mjög mikil andstaða við ákvæðið um landskipulagsáætlun og ekki sé vilji til að samþykkja það.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira