Ríkisstjórnin tryggi að landeigendur geti varið sig 19. september 2008 14:41 MYND/Stöð 2
Landssamband landeigenda sendi Geir H. Haarde forsætisráðherra bréf í síðustu viku þar sem farið er fram á það að hann beiti sér fyrir því að landeigendur geti varið sig í þjóðlendumálum. Í bréfinu er bent á að frá því að þjóðlendulög voru sett fyrir tíu árum og óbyggðanefnd tók til starfa hafi stór hluti þjóðlendumála farið fyrir dómstóla, alls 36 talsins og hafi sex verið skotið til Mannréttindadómstóls Evrópu. „Segja má að enn ríki veruleg óvissa um eignarréttarlega stöðu afrétta en jarðir með þinglýstum landamerkjum hafa almennt verið viðurkenndar eignarlönd, með undantekningum þó. Öræfi, jöklar og önnur óþinglýst lönd eru yfirleitt úrskurðuð þjóðlenda," segir enn fremur í bréfinu. Þar er enn fremur bent á að málareksturinn sé dýr því landeigendur þurfi að verja bæði tíma og fjármunum til að verjast ásælni ríkisins í jarðir. Þrátt fyrir hástemmd loforð um að bændur og aðrir landeigendur skuli vera skaðlausir fjárhagslega af málssókn ríkisins sé það ekki svo. Málskostnaður til lögmanna landeigenda sé úrskurðaður svo lágur að landeigendur verði sjálfir að leggja út í verulegan kostnað. „Í lýðræðisríki eru það talin mannréttindi að eiga rétt á óháðri vörn sjálfstæðra lögmanna sé að einstaklingum vegið af hálfu ríkisins. Það er alvarlegt mál ef færustu og reyndustu lögmenn á sviði eignarréttar hérlendis fást ekki lengur til að taka að sér þjóðlendumál fyrir landeigendur vegna þess að málskostnaður fæst ekki bættur að fullu af hálfu ríkisins. Fjöldi landeigenda hefur ekki handbæra fjármuni til að greiða þennan kostnað úr eigin vasa og hefur enda ekki stofnað til slíkra útgjalda. Margir neyðast því til að láta kyrrt liggja í stað þess að verja eigur sínar með tiltækum ráðum. Þetta er staða mála að óbreyttu," segja Landssamtökin og fara þess á leit við forsætisráðherra að hann breyti þessu. Í tilkynninugu Landssamtakanna segir einnig að þau hafi ekki enn fengið viðbrögð frá ríkisstjórninni við erindi sínu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira