Ók á ofsahraða yfir hringtorg 5. september 2008 07:53
Fólksbíll gjöreyðilagðist þegar honum var ekið yfir upphlaðið hringtorg á mótum Bæjarháls og Tunguháls í Árbæjarhverfi í Reykjavík í nótt. Ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp ómeiddur. Hann hefur verið á mikilli ferð því tólf metra bremsuför mældust áður en hann ók upp í grjóthleðsluna og kastaðist yfir hana. Ölvaður ökumaður, sem ók bíl sínum út af í efstu brekku Kamba á Suðurlandsvegi, á móts við útsýnisskífuna, síðdegis í gær, var enn að sofa úr sér ölvímuna í fangageymslum á Selfossi í morgunsárið. Það var lán hans í óláninu að líklega hefur hann verið á lítilli ferð því annars hefði hann farið fram af fjallsbrúninni. Innbrot og sjónhverfingar Flutningabíll og dráttarbíll rákust saman á Vesturlandsvegi norðan við Borgarnes í gærkvöldi og höfnuðu báðir bílarnir utan vegar. Ökumaður dráttarbílsins meiddist minniháttar en ökumaður hins bílsins slapp ómeiddur. Slysið varð með þeim hætti að futningabíllinn var að aka faramúr dráttarbílnum, þegar ökumaður dráttarbílsins beygði til vinstri í veg fyrir hann. Brotist var inn í Árbæjarskóla í Reykjavík í nótt og rótað þar í leit að verðmætum. Ekki liggur fyrir hvort einhverra hluta er saknað, en þjófurinn komst undan og er ófundinn. Þrír rúmenskir karlmenn, sem grunaðir eru um að hafa svikið fé út úr starfsfólki í verslunum með eins konar sjónhverfingum, voru í gær úrskurðaðir í tveggja vikna farbann. Þeir voru handteknir í veitingaskálanum Baulu í Borgarfirði, þar sem þeir voru á leið norður í land. Mennirnir komu hingað til lands á mánudagskvöldið og hófu fjársvik sín á Suðurnesjum og síðan á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Sjá meira