Kröfu Jóns um tvo verjendur vísað aftur heim í hérað 5. september 2008 16:31 Þrír sakborninga í málinu við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjavíkur. MYND/AP
Hæstiréttur vísaði í dag aftur heim í hérað kröfu Jóns Ólafssonar athafnamanns um að Sigurður G. Guðjónsson og Ragnar Aðalsteinsson yrðu báðir verjendur hans í máli efnhagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á hendur Jóni vegna meintra skattalagabrota. Eins og fram hefur komið er Jón sakaður um að hafa skotið um 360 milljónum króna undan skatti á árunum 1999-2002. Þrír aðrir menn, Hreggviður Jónsson, Ragnar Birgisson og Símon Ásgeir Gunnarsson, sem allir tengdust rekstri Norðurljósa og Íslenska útvarpsfélagsins, eru einnig sakaðir um brot á skattalögum. Héraðsdómur hafði fyrr í sumar hafnað þeirri kröfu að Sigurður yrði verjandi Jóns en saksóknari hafði bent á að Sigurður yrði hugsanlega kallaður til sem vitni í málinu. Við fyrirtöku málsins kom upp misskilningur á milli saksóknara og dómara annars vegar og verjandans Ragnars Aðalsteinssonar hins vegar, þar sem Ragnar hafði gert ráð fyrir því að geta gert grein fyrir máli sínu áður en úrskurður yrði kveðinn upp. Dómari las hins vegar úrskurðinn upp um leið og þinghald hófst. Ragnar sagði eftir þinghaldið að dómara hefðu orðið á mikil réttarfarsleg mistök og að málið yrði kært til Hæstaréttar. Hæstiréttur fjallaði um málið í dag og komst að þeirri niðurstöðu að verjandi Jóns hefði ekki þurft að vænta annars en að tækifæri gæfist til að rökstyðja kröfu Jóns frekar áður en afstaða yrði tekin til hennar, en í því sambandi yrði ekki horft fram hjá því að ekkert væri fært til bókar um að héraðsdómari tæki þetta atriði til úrskurðar. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi til þess að héraðsdómari tæki á ný afstöðu til kröfu Jóns að gættum nauðsynlegum undirbúningi.
Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent „Sá gamli er miklu fallegri“ Innlent Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Innlent „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Sjá meira