Innlent

Neikvæð viðbrögð frá Brussel við hugmynd Björns

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, gegnir formennsku í Evrópunefndinni ásamt Illuga Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Nefndin fundaði í dag.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, gegnir formennsku í Evrópunefndinni ásamt Illuga Gunnarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Nefndin fundaði í dag.

Evrópunefndin hyggst fara yfir hugmyndir Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, um upptöku evru á grundvelli samningnum um hið evrópska efnhagssvæði. Nefndin fundaði í dag í fyrsta sinn frá því að Björn setti fram sínar hugmyndir.

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar og annar tveimur formönnum nefndarinnar, segir að hugmynd Björns hafi fengið neikvæð viðbrögð frá Brussel.

Björn setti fram þá hugmynd um miðjan júlí í sumar að reynt verði að taka upp evru á Íslandi á grundvelli EES en án aðildar að Evrópusambandinu.

,,Við erum að fá vísbendingar frá Brussel að menn taka ekki mjög undir þessa hugmynd en við munum að sjálfsögðu taka þetta upp gagnvart framkvæmdastjórum Evrópusambandsins þegar við förum þangað og síðan munum við leggja mat á þau svör sem við fáum," sagði Ágúst Ólafur í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Evrópunefndin heimsækir Brussel í september.

,,Nefndin ákvað að kalla dómsmálaráðherra fyrir næsta fund til að ræða milliliðalaust við hann um þessi mál og hans hugmyndir."

Ágúst Ólafur segir að Evrópunefndin nálgist tillöguna út frá þremur sjónarhornum. Hagfræðilegum, lagalegum og pólitískum.

,,Það skiptir miklu máli í mínum huga að hafa ekki þessa leið hangandi fyrir okkur í marga mánuði. Nefndin var sammála þeirri nálgun að við verðum að fá einhvern botn í þessa athugun frekar fyrr en seinna," segir Ágúst Ólafur.




Tengdar fréttir

Bakhjarlar Sjálfstæðisflokksins vilja í ESB

Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, segir að bakhjarlar Sjálfstæðiflokksins vilja að flokkurinn beiti sér fyrir upptöku evru og jafnvel að sótt verði um aðild að Evrópusambandinu. Þetta kom fram í seinni fréttatíma Ríkissjónvarpsins í kvöld.

Hugmynd Björns er forleikur að aðild

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að hjá Sjálfstæðisflokknum hafi hugsanleg aðild að Evrópusambandinu snúist um hagsmunamat. Hann segir hugmynd Björns Bjarnasonar vera forleik að fullri aðild að Evrópusambandinu.

Seðlabankinn tjáir sig ekki um evruhugmyndir Björns

Enginn Seðlabankastjóranna þriggja vill tjá sig um hugmyndir Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um að taka upp evru á grundvelli EES samningsins. Vísir leitaði eftir viðbrögðum frá þeim fyrr í dag en var tjáð að þeir hefðu ekkert við það að bæta sem þeir hafi áður sagt.

Björn ítrekar fyrri afstöðu sína

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ítrekar í svarbréfi til Vísis fyrri afstöðu sína að miðað við lögheimildir í stofnsáttmála Evrópusambandins geti sambandið gert ,,evrusamninga við þjóðir utan ESB."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×