Geir staðfestir lán Pólverja 7. nóvember 2008 16:00 Geir H. Haarde og Björgvin G. Sigurðsson á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum. MYND/Anton
Geir H. Haarde forsætisráðherra staðfesti á blaðamannafundi fyrir stundu að Pólverjar hefðu boðist til að lána Íslendingum 200 milljónir dollara vegna þeirra efnahagsþrenginga sem Íslendingar ganga í gegnum. Hann sagði fjármálaráðherra Póllands hafa tjáð Árna Mathiesen fjármálaráðherra þetta í dag en Geir hafði ekki upplýsingar um það þegar hann var inntur eftir þessum tíðindum fyrir hádegi. Geir sagði frumkvæðið hafa komið frá Pólverjum og að ríkisstjórnin kynni þeim mestu þakkir fyrir þeirra vinahug. Þeir yrðu í samstarfi við ríkisstjórn Svíþjóðar sem hefði forystu um lán til Íslendinga frá hinum norrænu ríkjunum. Geir sagði enn fremur að forystumenn ríkisstjórninnar hefði átt samræður við stjórnarandstöðuflokkana undir forystu forseta Alþingis um það með hvaða hætti staðið yrði að heildarrannsókn á hruni bankanna. Málinu yrði komið í farveg áður en lagt um liði, annaðhvort með þingályktunartillögu eða lagafrumvarpi. Baðst afsökunar á litlum upplýsingum Geir sagði stjórnvöld nú leita leiða til þess að auka upplýsingagjöf til almennings en fundið hefði verið að henni. Verkefnið nú væri risavaxið og það kynni að vera að upplýsingaflæði hefði ekki verið nógu gott og baðst hann velvirðingar á því. Sagði hann einnig að ekki væri hægt að greina frá öllu sem í gangi væri en verið væri að vinna að mjög mörgu og frá því yrði skýrt þegar það væri hægt. Það ætti meðal annars við samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Geir sagði skiljanlegt að það væri mikil reiði og ólga í samfélaginu. Þjóðin hefði sýnt mikið æðruleysi og það væri bjartsýni og samstaða á þessum ótrúlega erfiðu tímum. Þótt árið 2009 yrði erfitt myndi ástandið strax skána árið eftir. Þá sagði hann að stjórnvöld myndu ekki líða að lögbrot í bankakerfinu yrðu órannsökuð. Hét hann því að jafnt myndi yfir alla ganga. Mjög mikilvægt væri að allir héldu ró sinni og benti forsætisráðherra á að bankakerfið virkaði vel.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira